Amerísk grísakjötloka með BBQ sósu

06. des. 2011

Það er erfitt að gera upp á milli barnanna sinna en þessi er í miklu uppáhaldi hjá okkur. Við eldum grísakjötið í 6 klst rífum það svo niður og bætum við vænum skamti af BBQ sósu og setjum að lokum í kjötlokubrauð.

Það átti að vera mynd með hérna en grísakjötlokan var borðuð áður en náðist mynd.

Þessi er rosaleg.

Heilsubiti er kominn með nýtt heilkornabrauð

06. des. 2011

Heilsubiti er kominn með nýtt heilkornabrauð. Brauðið er fullt af trefjum, án viðbætts sykurs, með lágt fituhlutfall og inniheldur lítið af salti.  Hollt og gott og fullt af næringarríkum trefjum sem gefur þér kraft og orku til að takast á við nýjan dag. Prófaðu nýjan og betri Heilsubita og settu hollustuna í forgang. Heilsubiti inniheldur Heilkornabrauð, egg, tómata, gúrkur, iceberg og sinnepsósu.