Sagan
Sómi ehf. var stofnað árið 1978 af Bjarna Sveinssyni. Núverandi eigendur og stjórnendur fyrirtækisins, Arnþór Pálsson og Alfreð Hjaltalín komu fyrst sem hluthafar að rekstrinum árið 1993. Árið 2003 keyptu þeir reksturinn að fullu.Sómi keypti Júmbó samlokur árið 2006. Hjá Sóma starfa nú um 80 manns við framleiðslu, dreifingu og skrifstofustörf og hefur starfsfólk þess af miklum dugnaði og framsýni byggt upp og rekið þetta stærsta fyrirtæki á sínu sviði á Íslandi.
Fyrirtækið
Sómi er með stóra markaðshlutdeild á Íslandi á sínu sviði í matvælageiranum.Fyrirtækið samanstendur af tveimur einingum, Sómasamlokum og Júmbósamlokum, sem báðar framleiða matvæli fyrir heimamarkað. Undir merkjum Sóma og Júmbó framleiðir fyrirtækið m.a. eftirtaldar vörur; samlokur, langlokur, hamborgara, pastarétti, hyrnur, samlokubakka, lasagna, tortilla og burritos.
Varan
Allt frá upphafi hefur Sómi haft það markmið að framleiða bragðgóða og holla vöru úr fyrsta flokks hráefnum á hagkvæmu verði. Lögð er áhersla fjölbreytt vöruúrval og stöðuga vöruþróun bæði hvað varðar matvöruna sjálfa og umbúðirnar. Styrkleiki fyrirtækisins felst ekki síst í öflugri dreifingu sem tryggir að neytendum býðst ávallt fersk vara. Fyrirtækið hefur yfir að ráða 11 bílum sem dreifa ferskum vörum í verslanir höfuðborgarsvæðisins 6 daga vikunnar, einnig er vörunum dreift um allt land.
Gæðamál
Sómi hefur lagt mikla áherslu á hreinlæti og innra eftirlit (Haccap). Inná framleiðslusvæðið fer enginn nema í þar til gerðum fatnaði.









